Saturday, November 10, 2007

Áminning

Þetta fékk ég sent frá Maríu Rut fyrir einhverjum mánuðum síðan. Ágætis áminning.


Ég lofa sjálfum mér...

Að vera það sterkur að ekkert fær raskað hugarró minni
Að ræða um heilsu, hamingju og velmegun við alla þá sem ég hitti
Að sýna fólki í kringum mig að það sé mikilsvirði
Að horfa á björtu hliðarnar á öllu og láta bjartsýni mína birtast í verkum
Að hugsa aðeins um það besta, vinna að því besta og vænta aðeins þess besta
Að vera jafnáhugasamur um velgengni annarra og ég er um mína eigin
Að leggja mistök fortíðarinnar til hliðar og einblína á afrek framtíðarinnar
Að bera ánægjusvip öllum stundum og brosa til allra sem verða á vegi mínum
Að verja það miklum tíma í að bæta sjálfan mig að ég hafi engan tíma til að gagnrýna aðra
Að vera of stór fyrir áhyggjur, of göfugur fyrir reiði, of sterkur fyrir ótta og of hamingjusamur til þess að láta vandamál ráða ferð
Að hugsa vel um sjálfan mig og kunngera heiminum það, ekki með því að mæla hátt, heldur með góðum gjörðum
Að lifa í þeirri trú að allur heimurinn standi með mér, svo lengi sem ég er trúr því besta í sjálfum mér.

2 comments:

Anonymous said...

oh - já þetta er ágætis áminning. ég ætla að skrifa þér póst á morgun. og dragðu nú hana dills mína frá myspace-inu, gengur ekki að skvísan sé stöðugt online á meðan að san fran bíður eftir að uppáhaldsfólkið mitt geri einhvern heljarinnar skandal...

Anonymous said...

Er hún á Myspace - dilli manilli.... Ja, hún var ekki á myspace í dag þegar hún ferjaði kjólana úr búðunum í bílinn í dag...